Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur gerði sér lítið fyrir í morgun þegar hann felldi Oslóartréð í Heiðmörk með aðstoð Sævars Hreiðarssonar skógarvarðar hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Sitkagrenitréð, sem er 14 metra hátt og um 70 ára gamalt, mun standa yfir hátíðarnar á Austurvelli.
Þetta kemur fram í tilkynningu Reykjavíkurborgar.
Tréð dregur nafn sitt af áratuga hefð þar sem Oslóarborg hefur gefið Reykvíkingum jólatré í tákn um vináttu borganna. Ekki kemur að sök þó að tréð hafi ekki verið flutt alla leið frá Noregi en tréð var fellt í Landnemaspildu Norska félagsins við Torgeisstaði, sem er sumarbústaður Nordmannslaget í Heiðmörk.
Er því um gjöf frá Norðmönnum að ræða, að því er fram kemur í tilkynningunni. Þá munu borgaryfirvöld í Osló einnig gefa bækur til grunnskóla Reykjavíkur.
Ljósin á trénu verða tendruð eftir rúma viku, eða þann 28. nóvember sem er fyrsti í aðventu. Vegna útbreiðslu smita í samfélaginu verður þó ekki haldin athöfn að þessu sinni.
Þá var einnig fellt tré sem verður fært Færeyingum að gjöf. Mun það prýða Tinghúsvöllinn í miðborg Þórshafnar.