Grunur um laxaveiru í sjókví

Laxeldiskvíar.
Laxeldiskvíar. mbl.is/Þorgeir

Matvælastofnun hefur staðfest, að rökstuddur grunur sé að ISA veira, sem getur valdið  sjúkdómnum blóðþorra í laxi sé í einni kví í sjókvíum Laxa fiskeldis á stöðinni Gripalda í Reyðarfirði. Veiran er skaðlaus mönnum og berst ekki með fiskafurðum.

Fram kemur í tilkynningu frá Jens Garðari Helgasyni, framkvæmdastjóra Laxa fiskeldis, að stöðn hafi verið einangruð og unnið sé að því að taka út allan fisk sem er í viðkomandi kví.  Allar aðgerðir og áframhaldandi aðgerðir séu unnar í nánu samstarfi og eftir fyrirmælum Matvælastofnunar.

Matvælastofnun segir, að ef sú greining sem nú liggur fyrir reynist rétt með staðfestingarprófum sé þetta í fyrsta sinn sem sjúkdómsvaldandi afbrigði ISA-veirunnar greinist í laxi hér á landi. Frá því fyrsta tilfelli blóðþorra var staðfest í Noregi árið 1984 hefur veiran einnig valdið klínískum sjúkdómi hjá fjölmörgum öðrum laxeldisþjóðum. Síðasta tilfelli í Færeyjum átti sér stað 2016/17 þegar klínísk sýking kom upp í stakri kví en allur annar fiskur reyndist heilbrigður og var slátrað til manneldis. 

Á vef MAST segir, að ISA-veiran tilheyri inflúensuveirum af fjölskyldunni Orthomyxoviridae og búi yfir flestum þeim eiginleikum inflúensuveira sem við þekkjum frá bæði spendýrum og fuglum. Þekkt séu tvö afbrigði ISA-veirunnar. Annað er meinvirkt og veldur misalvarlegri sýkingu og afföllum (ISA-del), en hitt er góðkynja afbrigði sem aldrei veldur sjúkdómi eða tjóni (ISA-HPR0).

„Faraldsfræðilegar rannsóknir hafa sýnt að góðkynja afbrigði veirunnar er mun útbreiddara en áður var talið og finnst að öllum líkindum alls staðar í umhverfi laxa, bæði hjá villtum laxi og í eldisumhverfi. Lengi hefur legið fyrir og staðfest að hið góðkynja afbrigði veirunnar er til staðar hér við land og hefur eflaust fylgt laxi frá örófi alda. Þess ber einnig að geta að klínísk einkenni hafa aldrei verið staðfest í villtum laxi á heimsvísu, jafnvel þó hin meinvirka gerð veirunnar (ISA-del) hafi verið einangruð úr slíkum fiski. Sérfræðingum ber saman um að hið meinvirka afbrigði verði til við stökkbreytingu á hinu meinlausa afbrigði. Slíkar stökkbreytingar eru afar sjaldgæfar, en árleg áhætta á sýkingu með stökkbreyttu meinvirku afbrigði hefur verið reiknað til 0,7% fyrir dæmigert sjókvíaeldissvæði,“ segir á vef MAST.

ISA-veiran uppgötvaðist við krufningu og sýnatöku í kjölfar vaxandi óútskýrðra affalla í kví G7. Ákvörðun hefur verið tekin um að aflífa lax úr viðkomandi kví við fyrsta tækifæri og farga úrgangi með tryggum hætti. Lax sem alinn er í öðrum kvíum á eldissvæðinu virkar heilbrigður, fóðrun eðlileg og vöxtur góður. Fiskur í nágrannakvíum verður settur undir hert eftirlit og skimanir af öryggisástæðum.

Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum vinnur nú að nánari staðfestingu og skilgreiningu á arfgerð veirunnar. Í fyrstu verða greind veirusýni send til Leipzig í Þýskalandi til sérstakrar raðgreiningar, en einnig verður unnið í samvinnu við rannsóknastofu Evrópusambandsins í veirusjúkdómum lagardýra í Danmörku.

Matvælastofnun hefur í varúðarskyni sett dreifingarbann á starfsstöð fyrirtækisins við Gripaldi í Reyðarfirði sem mun gilda þar til slátrað hefur verið úr sjókvíunum og svæðið sett í hvíld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert