128 innanlandssmit í gær

128 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og sex á landamærunum. Alls voru 69 í sóttkví, að því er kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum.

Þar er bent á að um bráðabirgðatölur sé að ræða, eins og venjan er um helgar.

Alls eru 1.672 í einangrun og 2.076 í sóttkví.

Fjöldi PCR sýna sem tekin voru í gær verða birt á covid.is þegar vefsíðan verður uppfærð aftur á mánudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert