Sjötugur karlmaður lést á Landspítala 18. desember vegna Covid-19.
Alls liggja 11 sjúklingar á Landspítala vegna Covid-19 og er meðalaldur þeirra 64 ár. Tveir eru á gjörgæslu og er annar þeirra í öndunarvél.
1.807 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 654 börn, að því er segir í tilkynningu.
Frá upphafi fjórðu bylgju hafa 233 verið lagðir inn vegna Covid-19 á Landspítala.