Ekki í fyrsta sinn sem vatnsleki leiðir til handtöku

Einn var handtekinn og yfirheyrður í framhaldinu.
Einn var handtekinn og yfirheyrður í framhaldinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekki liggur fyrir hversu mörg kíló af kannabis lögreglan lagði halda á á sunnudag í Breiðholti, en að sögn Þóru Jónasdóttur, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, þá var þetta „ágætis ræktun“.

Eins og mbl.is greindi frá í gær leiddi útkall vegna vatnsleka í ljós kannabisræktun, einn var handtekinn og sleppt eftir yfirheyrslu. 

Spurð hvort útkall vegna vatnsleka hafi áður leitt í ljós kannabisræktun svaraði Þóra því játandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert