Appelsínugul viðvörun – fylgist með lægðinni ganga yfir

Vindaspáin kl. 21 í kvöld.
Vindaspáin kl. 21 í kvöld. Kort/Veðurstofa Íslands

Appelsínugul viðvörun er í gildi vegna veður um landið sunnan- og vestvert og á miðhálendinu. Hér má fylgjast með lægðinni sem er að ganga yfir landið.

Veðurstofa Íslands spáir suðaustan 13-20 metrum á sekúndu og slyddu eða rigningu með köflum sunnan- og vestanlands. Hiti verður 0 til 5 stig. Hægari vindi er spáð á Norður- og Austurlandi, skýjað og minnkandi frost. Gengur í suðaustan 18-25 í kvöld og nótt, með talsverðri rigningu á sunnanverðu landinu.

Dregur úr vindi á morgun, víða allhvasst eða hvasst síðdegis og hægari annað kvöld. Úrkomulítið norðanlands, annars rigning með köflum og talsverð úrkoma suðaustan til fram eftir degi. Hiti 0 til 6 stig.

Veðurvefur mbl.is

Uppfært kl. 17:48: Viðvörunarstig er nú appelsínugult en var gult áður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert