Skiptu fíkniefnunum út fyrir gerviefni

Fíkniefnin fundust við tollskoðun á Íslandi þann 20. september.
Fíkniefnin fundust við tollskoðun á Íslandi þann 20. september. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ákæruvaldið hefur ákært karl og konu fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Þau eru meðal annars sökuð um að hafa flutt fíkniefni með flutningaskipi frá Danmörku til Ísland. Ákæran er í þrem liðum.

Þetta kemur fram í ákærunni sem mbl.is hefur undir höndunum.

Fíkniefni falin í gólfi bifreiðar

Í fyrsta ákærulið eru ákærðu sökuð um að hafa staðið að innflutningi á 3.979,89 grömmum af kókaíni sem var ætlað til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.

Ákærðu eru sökuð um að hafa falið fíkniefni í gólfi bifreiðar sem þau sendu frá Danmörku til Íslands með flutningaskipi. Fíkniefnin fundust í bifreiðinni við tollskoðun á Íslandi þann 20. september og skipti lögreglan fíkniefnunum út fyrir gerviefni.

Þá eru ákærðu sögð hafa sótt bifreiðina þann 22. september á tollsvæði Smyril Line í Þorlákshöfn og ekið henni að heimili þeirra í Reykjavík. Daginn eftir, þann 23. september, voru þau bæði handtekin.

Í öðrum og þriðja lið ákærunnar eru ákærðu sökuð um að hafa haft í vörslum sínum 271,30 grömm af kókaíni, 5,58 grömm af vímuefninu MDMA, 1.424 stykki af vímuefninu MDMA, 3,32 grömm af kókaíni og 0,65 grömm af maríjúana sem lögregla fann við húsleit.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert