Staðfestu úrskurð um sóttkví

Landsréttur staðfesti úr­sk­urð Héraðsdóms Reykja­ness.
Landsréttur staðfesti úr­sk­urð Héraðsdóms Reykja­ness. mbl.is/Hallur Már

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um kröfu sótt­varna­lækn­is þess efn­is að karl­maður sæti sótt­kví frá 30. des­em­ber 2021 til 13. janú­ar 2022, en ákvörðun falli niður gang­ist hann und­ir PCR-próf fyrr.

„Það má lesa það úr úrskurðinum að Landsréttur telji honum ekki vorkunn að fara í þetta PCR-próf og stytta sína sóttkví,“ segir Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður mannsins, í samtali við mbl.is

Maðurinn þurfti að sæta sótt­kví frá 11. des­em­ber þegar dótt­ir hans greind­ist smituð og síðan frá 16. des­em­ber þar sem eig­in­kona hans greind­ist. Þá greindist sonur hans 30. desember og mun hann að öllu líkindum því ljúka einangrun í dag, að því er segir í úrskurðinum.

Því segir í úrskurðinum að maðurinn muni að öllu óbreyttu eiga þess kost að losna úr sóttkví á morgun, að fenginni neikvæðri niðurstöðu úr PCR-prófi. 

Dómstólar ekki kröfuharðir

„Það er alveg ljóst að dómstólar eru ekki að gera sérstaklega miklar kröfur á að þeir sem standa að þessum sóttkvíarákvörðunum leggi fram einhver sérstök gögn um þetta. Það er gengið út frá því að það sem liggur til grundvallar að þessum frelsisskerðingum sé allt satt og rétt,“ segir Gunnar.

„Þá eru það vonbrigði að ekki hafi verið farið dýpra í lögfræðina, hvort að málsmeðferðin hafi verið rétt. Því að ég held að það hafi alveg komið í ljós að ekki var farið eftir henni eins og lögin kveða á um. Það er hins vegar ekki afstaða dómstóla.“

Að sögn Gunnars er ekki heimild í lögum til að áfrýja málinu til Hæstaréttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert