Árekstur á gatnamótum Háaleitisbrautar og Miklubrautar

Engin slys urðu á fólki.
Engin slys urðu á fólki. Ljósmynd/mbl.is

Tveir bílar rákust saman á gatnamótum Háaleitisbrautar og Miklubrautar rétt fyrir hádegi í dag. Ók annar bíllinn inn í hlið hins.

Lögregla, sjúkra- og slökkvilið fór á staðinn en í ljós kom að enginn hafði slasast, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Slökkvi- og sjúkralið þurfti því ekkert aðhafast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert