96 sjúkraflutningar og 5 útköll á dælubíl

Það er yfirleitt nóg að gera hjá slökkviliðinu.
Það er yfirleitt nóg að gera hjá slökkviliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fór í 96 sjúkraflutninga á síðastliðnum sólarhring og fimm útköll á dælubíl. Var þar um að ræða hreinsun á olíu, umferðarslys, reykræstingu og eld í blaðagámi. Þetta kemur fram á facebook-síðu slökkviliðsins.

Þá voru tveir til fjórir starfsmenn í sýnatökum vegna Covid-19 á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert