Þórólfur algjörlega ósammála Ragnari

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ekkert vit í því að hætta almennri sýnatöku vegna kórónuveirufaraldursins og prófa eingöngu þá sem eru í áhættuhópum, líkt og Ragnar Freyr Ingvars­son, sér­fræðing­ur í lyf- og gigt­ar­lækn­ing­um og fyrr­ver­andi yf­ir­maður Covid-göngu­deild­ar Land­spíta­lans, velti upp í gær.

„Ég er algjörlega ósammála honum,“ segir Þórólfur í samtali við mbl.is.

„Þungamiðjan hefur verið og er að beita einangrun og sóttkví og það hefur haldið faraldrinum aðeins í skefjum. Annars væri þetta komið í veldisvöxt, það er ég viss um,“ segir Þórólfur.

Þórólfur tekur undir með Má Kristjánssyni, yfirlækni smitsjúkdómadeildar á Landspítala, sem segir mikilvægt að halda áfram að skima af krafti.

Spurður út í nálg­un­ina sem Ragn­ar Freyr vel­tir upp sagði Már í samtali við RÚV að frá­leitt væri að stoppa skiman­ir.

Þórólfur vill halda áfram að skima af krafti.
Þórólfur vill halda áfram að skima af krafti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Viðfangs­efnið hverf­ur ekk­ert þótt sé hætt að skima. Það yrði þá bara stjórn­laust, ég hef enga trú á að það væri leiðin fram á við,“ sagði Már.

Þórólfur segir engan mæla þessari hugmynd Ragnars. „Þá myndum við fá fleiri smit og meiri útbreiðslu á stuttum tíma, með meiri pressu og innlögnum á spítalann.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert