Á annan tug hálkuslysa í dag

Það leynist hálka á stígum og götum höfuðborgarsvæðisins.
Það leynist hálka á stígum og götum höfuðborgarsvæðisins. mbl.is/Golli

Tilkynningar hafa borist um fjölda hálkuslysa á höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu eru slysin á annan tug talsins og hafa þó nokkrir verið fluttir á slysadeild.

Aldursbil þeirra sem hafa dottið og meitt sig er mjög breitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert