Framlengja samning við talmeinafræðinga

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sjúkratryggingar Íslands hafa framlengt samning um þjónustu sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga um sex mánuði og fellt brott kröfu um tveggja ára starfsreynslu líkt og talmeinafræðingar hafa lagt á ríka áherslu.

Jafnframt er gert ráð fyrir að framlengingartíminn verði nýttur til að vinna að útfærslu gæðavísa um þjónustuna, forgangsröðun og fleiru til að tryggja sem besta þjónustu við notendur, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.

Starfshópur skipaður af heilbrigðisráðherra vinnur nú að endurskoðun á skipulagi þjónustu talmeinafræðinga með heildstæðum tillögum um þjónustu þeirra við börn. Reiknað er með að nýir samningar taki við að sex mánuðum liðnum og byggist á niðurstöðu framangreindrar vinnu.

„Þetta er mikilvægt skref. Ég bind miklar vonir við að vel takist til með nýjan samning að sex mánuðum liðnum sem færir þessa mikilvægu þjónustu í gott horf fyrir þá sem á henni þurfa að halda en það eru að langstærstum hluta börn“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert