Nýtt tengslanet um upplýsinga- og miðlalæsi

Stofnað hefur verið tengslanet um upplýsinga- og miðlalæsi á Íslandi.
Stofnað hefur verið tengslanet um upplýsinga- og miðlalæsi á Íslandi. AFP

Stofnað hefur verið tengslanet um upplýsinga- og miðlalæsi á Íslandi. Hlutverk tengslanetsins, sem kallað er TUMI, er að auðvelda upplýsingaskipti milli þeirra aðila sem vinna að upplýsinga- og miðlalæsi á Íslandi og greiða fyrir samstarfi meðlima. Þetta kemur í tilkynningu frá TUMI.

Drefing falsfrétta færst í aukana síðastliðin ár

Í tilkynningunni segir að upplýsinga- og miðlalæsi sé mikilvægt til að efla gagnrýna hugsun þannig að almenningur geti dregið skynsamar ályktanir af þeim upplýsingum sem verði á vegi hans. Aðgangur að traustum upplýsingum sé forsenda upplýstrar umræðu.

Á síðustu árum hefur dreifing falsfrétta og upplýsingaóreiðu færst mjög í aukana á stafrænum miðlum á sama tíma og netið er að verða stærri og mikilvægari samskiptavettvangur í lýðræðislegri umræðu. Tæknibreytingar hafa gert það að verkum að auðveldara er að dreifa upplýsingum og að sama skapi erfiðara að greina uppruna og sannleiksgildi hinna ýmsu upplýsinga. Mikilvægi upplýsinga- og miðlalæsis hefur því aldrei verið meira.

Hingað til hafi ýmsar stofnanir, fyrirtæki og samtök unnið þýðingarmikið starf tengt upplýsing- og miðlalæsi á ólíkum sviðum. Megi þar nefna Fjölmiðlanefnd útgáfu fræðsluefnis um fjölmiðlalæsi, bókasöfn sem stuðla að upplýsingalæsi, Kvikmyndastöð með verkefnum um myndlæsi að ónefndum grunn-, framhalds- og háskólum sem daglega fjalli um læsi í öllum þessum myndum.

Til að hægt sé að móta heildstæða stefnu fyrir Ísland á sviði upplýsinga- og miðlalæsis, ná utan um þá þekkingu sem nú þegar er til staðar og ákveða forgangsröðun verkefna í þeirri mikilvægu vinnu sem framundan er, hefur verið ákveðið að setja á laggirnar tengslanet um upplýsinga- og miðlalæsi á Íslandi að norrænni fyrirmynd. Ólíkir aðilar geta þannig upplýst um stefnu og fyrirhuguð verkefni þannig að hægt verði að fá yfirsýn um stöðu mála hér á landi.“

Markmið að móta heildstæða stefnu fyrir Ísland 

Markmið TUMA sé að auka yfirsýn yfir þau verkefni sem nú er verið að vinna og miðla þekkingu og reynslu, samræma aðgerðir og skapa tækifæri til samstarfs um sértækar aðgerði, forgangsraða verkefnum og móta heildstæða stefnu fyrir Ísland í góðu samstarfi allra aðila sem koma með einum eða öðrum hætti að upplýsinga- og miðlalæsi, að efla og þroska upplýsinga- og miðlalæsi almennings.

Fulltrúar frá eftirfarandi aðilum komu að stofnun TUMA: 

Fjölmiðlanefnd, SAFT – samfélag, fjölskylda og tækni, Heimili og skóli, Kvikmyndamiðstöð, Landsbókasafn Íslands, Bókasafn Háskólans í Reykjavík, RÚV – Ríkisútvarpið, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Samgöngu-og sveitarstjórnarráðuneytið, Menntamálastofnun, Menntavísindasvið, Listaháskóli Íslands, Háskóli þriðja æviskeiðsins, aðilar frá Háskólasamfélaginu, Endurmenntun HÍ, Símenntun HA, RANNUM – Rannsóknarstofa í upplýsingatækni og miðlun, Barnaheill, Landsnefnd UNESCO, Persónuvernd, Menntasvið Kópavogsbæjar, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, Þjónustumiðstöð Breiðholts, AwareGO og RIFF- Reykjavík International Film Festival.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert