Litháískur miðaeigandi hafði heppnina með sér, var einn með fyrsta vinning í Víkingalottó og hlaut rúmlega 836 milljónir í vinning.
Tveir skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hvor þeirra tæpar 10 milljónir; annar miðinn var keyptur í Noregi en hinn á Íslandi, í Mini Market í Reykjanesbæ.
Var einn með allar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fær hann 2 milljónir í vinning. Sá miði var keyptur í Hagkaup, Skeifunni í Reykjavík.