„Kominn tími á þjálfaraskipti“

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hvar er heilbrigðisráðherra Framsóknarflokksins eiginlega?“ spurði Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar á þingi, þar sem hún gagnrýndi Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra vegna stöðunnar á bráðamóttöku Landspítalans.

Fjór­ir hjúkr­un­ar­fræðing­ar hafa sagt upp störf­um á bráðamót­tök­unni vegna langvar­andi álags og lé­legs aðbúnaðar. Auk þess tóku tíu upp­sagn­ir gildi í mars.

Helga Vala sagði að að væri „ekkert að frétta“ í heilbrigðismálum og stjórnvöld hefðu ekkert gert til að bæta ástandið í heilbrigðiskerfinu.

Svo að við tökum upp líkingamál sem hæstvirtur heilbrigðisráðherra skilur þá vil ég benda á að það er langt liðið á fyrri hálfleik hjá honum og út úr liðinu streyma lykilleikmenn sem haldið hafa liðinu á floti. Fólkið í stúkunni er farið að hvísla sín á milli að kominn sé tími á þjálfaraskipti, enda þolinmæðin lítil eftir slakt gengi á síðasta kjörtímabili,“ sagði Helga Vala.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Kristinn Magnússon

Lykilstarfsmaður á bráðamóttökunni í Fossvogi hafi sagt upp í gær vegna langvarandi álags og sagði Helga Vala að engar lausnir væri í sjónmáli.

Fleiri lykilstarfsmenn hyggja á brottför af því að fólk fer heim af vaktinni með nagandi samviskubit og eftirsjá í boði ríkisstjórnarinnar. Nei, þaðan er ekkert að frétta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert