Vegleg bæjarhátíð í tuttugu manna sveitaþorpi

Vilhjálmur Hjörleifsson.
Vilhjálmur Hjörleifsson. mbl.is/Helgi

„Hugmyndin kom eiginlega upp fyrir tveimur árum, þegar Borgarbyggð gat ekki slegið hjá okkur fyrr en seint um sumarið vegna hátíða sem voru í Borgarnesi. Við ákváðum þá að halda okkar eigin bæjarhátíð vorið eftir, á undan hinum, og þá fengum við slátt,“ segir Vilhjálmur Hjörleifsson, formaður Hollvinafélags Varmalands í Borgarfirði.

Félagið efnir öðru sinni til Varmalandsdaga með yfirskriftinni List og lyst um næstu helgi. Þegar rætt var við Vilhjálm, voru starfsmenn sveitarfélagsins að slá og gera fínt á landi sínu.

Varmaland er upprunalega skólastaður og er enn samfélagsmiðstöð sveitanna í kring en ferðaþjónustan hefur þó yfirhöndina núorðið. Stór garðyrkjustöð er rekin undir nafni Laugalands, þannig að þegar litið er til þess, Hótels Varmalands í gamla húsmæðraskólanum og starfseminnar í barnaskólanum, er Varmaland mikilvægur vinnustaður, þótt aðeins séu rúmlega tuttugu manns með lögheimili á staðnum. Til viðbótar lögskráðum íbúum vinnur fjöldi fólks á staðnum. Börn sækja skólann á vetrum og tugir eða hundruð ferðamanna leggja þangað leið sína á hverjum degi yfir sumarið og margir gista á hóteli eða í tjaldi.

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert