Ánægja með þjónustu heilsugæslustöðva

Þegar spurt var um reynsluna af viðmóti hjá heilsugæslunni sögðust …
Þegar spurt var um reynsluna af viðmóti hjá heilsugæslunni sögðust rúmlega 87 prósent hana mjög eða frekar góða. Ljósmynd/ Heilsugæslan

Átta af hverjum tíu eru mjög eða frekar ánægðir með þjónustu veitta á heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins. Níu af hverjum tíu hafa nýtt sér stafræna þjónustu heilsugæslunnar.

Þetta kemur fram í könnun Gallup fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið. Hún var lögð fyrir á tímabilinu 7. janúar til 29. mars. Alls var spurt um 45 ríkisstofnanir. 

Ánægja með viðmót starfsfólks

Rúm 83 prósent þátttakenda lýstu yfir ánægju með þjónustu heilsugæslustöðva, en rúm sex prósent sögðust frekar eða mjög óánægð. 

Þegar spurt var um reynsluna af viðmóti hjá heilsugæslunni sögðust rúmlega 87 prósent hana mjög eða frekar góða.

„Við hjá heilsugæslunni erum bæði stolt og ánægð með þennan góða árangur. Það er auðvitað okkar frábæra starfsfólki að þakka hvernig til hefur tekist og augljóst að þau leggja mikið á sig til að halda uppi góðri þjónustu þrátt fyrir gríðarlegt álag tengt heimsfaraldrinum,“ segir Svava Kristín Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri sviðs mannauðs og nýliðunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, í tilkynningu.

Þær upplýsingar sem starfsfólks Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins veitir eru almennt taldar áreiðanlegar. Alls sögðu rúmlega níu af hverjum tíu að upplýsingar frá stofnuninni séu mjög eða frekar áreiðanlegar og aðeins um tvö prósent töldu þær mjög eða frekar óáreiðanlegar.

Forritun ný tegund heilbrigðisþjónustu

Níu af hverjum tíu hafa nýtt sér stafræna þjónustu heilsugæslunnar. Aðeins um fjögur prósent höfðu lítinn áhuga á að nýta stafrænu þjónustuna. Alls sögðust nærri átta af hverjum tíu mjög eða frekar ánægð með stafræna þjónustu, en tæplega fjögur prósent voru óánægð með þessa þjónustu.

„Við höfum lagt mikið í að þróa stafræna þjónustu heilsugæslunnar og hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft. Það höfum við til dæmis gert með vefnum Heilsuveru, sem almenningur notar mjög mikið. Það er þróun sem á bara eftir að aukast á næstu árum og það má eiginlega segja að forritun sé ný tegund heilbrigðisþjónustu,“ segir Svava.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert