Kaupa nýjar rútur

Ágúst Haraldsson við rúturnar á plani fyrirtækisins í Hafnarfirði.
Ágúst Haraldsson við rúturnar á plani fyrirtækisins í Hafnarfirði. mbl.is/Sigurður Bogi

„Ferðaþjónustan er komin á fullt, sem kallar á að við stækkum flota okkar,“ segir Ágúst Haraldsson, rekstarstjóri Hópbíla. Fyrirtækið fékk á dögunum afhenta tvo nýja hópferðabíla af gerðinni VDL; annan 57 farþega en hinn fyrir 63 farþega. Af síðarnefndu stærðinni fóru einnig tveir bílar til dótturfyrirtækis Hópbíla, Reykjavík Sightseeing.

Rútur af gerðinni VDL eru framleiddar í Hollandi og hafa komið sterkar inn að undanförnu, skv. upplýsingum frá Vélrás ehf. sem er með Íslandsumboð fyrir þessari tegund. Alls eru 9 bílar af þessari tegund komnir í flota Hópbíla.

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert