Mennirnir sagðir hafa verið nágrannar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að þessu húsi við Barðavog …
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að þessu húsi við Barðavog í gærkvöldi. mbl.is/Sólrún

Talið er að maðurinn sem lést í Barðavogi í Reykjavík í gærkvöldi hafi verið nágranni mannsins sem er grunaður um að hafa banað honum.

RÚV greinir frá því samkvæmt heimildum að mennirnir hafi ekki tengst að öðru leyti, en nefnir að hinn látni sé fæddur árið 1975. Ekki er talið að þeir hafi tengst glæpastarfsemi.

Maður­inn sem var hand­tek­inn í gær verður leidd­ur fyr­ir Héraðsdóm Reykja­vík­ur í dag. Þar verður tek­in ákvörðun um það hvort hann verður úr­sk­urðaður í gæslu­v­arðhald.

Uppfært kl. 13:

Heimildir Fréttablaðsins herma að lögreglan hafi að minnsta kosti verið kölluð tvívegis að húsinu sólarhringinn áður en maðurinn fannst látinn þar í gær og að atburðir gærdagsins hafi haft nokkurn aðdraganda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert