Eðlilegt ef fólki í grenndinni er brugðið

Dyr Laugarneskirkju standa opnar fyrir þau sem þangað vilja sækja …
Dyr Laugarneskirkju standa opnar fyrir þau sem þangað vilja sækja áfallahjálp. mbl.is/Sigurður Bogi

Dyr Laugarneskirkju standa opnar fyrir fólk sem vill leita sér áfallahjálpar vegna manndráps sem talið er hafa verið framið í Barðavogi á laugardagskvöld. Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, segir aðspurður eðlilegt ef fólki á svæðinu er brugðið vegna atburðarins.

„Við veitum hana um leið og eftir henni verður óskað,“ segir Davíð í samtali við mbl.is, spurður um það hvort áfallahjálp sé veitt í kirkjunni.

„Við mætum ekki á staðinn og bjóðum áfallahjálp óumbeðin en ef til okkar er leitað þá eru okkar dyr opnar og við myndum setja það í forgang og rýma til í annarri dagskrá til þess að veita [áfallahjálp] en frumkvæðið að því verður að koma frá þeim sem óska eftir þjónustunni.“

Meint manndráp átti sér stað í Barðavogi 22.
Meint manndráp átti sér stað í Barðavogi 22. mbl.is/Óttar

Óskin getur komið frá lögreglu eða fólkinu sjálfu

Eru það þá frekar einstaklingar en lögreglan?

„Lögregla getur haft milligöngu. Það gerist oft að lögregla hringir í prest ef voveiflegur atburður hefur orðið, til dæmis andlát, og lögregla hefur lokið störfum á vettvangi en metur það sem svo að það sé óábyrgt að skilja fólk eftir í því ástandi sem það er þá gerist það mjög oft að hringt er í prest og prestur er beðinn um að koma og taka við,“ segir Davíð og bætir við:

„Þessi ósk getur komið hvort sem er frá lögreglu, og þá með samþykki hlutaðeigandi, eða beinlínis frá fólkinu sjálfu – þá yfirleitt ekki strax í kjölfarið á atburðinum heldur daginn eftir eða tveimur dögum eftir þegar það áttar sig á því að lífsreynslan situr í því og það þarf hjálp til að vinna úr henni.“

Sam­kvæmt heim­ild­um mbl.is er maðurinn sem lést fædd­ur árið 1975 en karl­maður, fædd­ur árið 2001, er grunaður um að hafa orðið manninum að bana. Rannsókn málsins stendur yfir en eins og fram hefur komið var lögregla um helgina í tvígang kölluð á staðinn vegna líkamsárása fyrir manndrápið. Hvorugur mannanna lagði fram kæru í þeim tilvikum og því gat lögregla lítið aðhafst.

Svonalagað getur væntanlega verið erfitt fyrir fólk sem býr í hverfinu jafnvel þó að það hafi ekki orðið vitni að atburðinum beinlínis?

„Algjörlega, að vita af svona í næstu götu – það er eðlilegt að það komi fólki í uppnám,“ segir Davið Þór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert