Sjúklingar einungis með aðgang að lokuðum garði

Ábending barst um að á deild 33A væri þeirri vinnureglu …
Ábending barst um að á deild 33A væri þeirri vinnureglu fylgt að sjúklingar sem væru nauðungarvistaðir í allt að 21 sólarhring ættu ekki kost á útiveru fyrr en að liðnum þeim tíma. mbl.is/Unnur Karen

Skoðun á verklagi vegna útiveru sjúklinga í nauðungarvistun í geðþjónustu á Landspítala er hafin á stofnuninni í kjölfar fyrirspurnar umboðsmanns Alþingis. Umboðsmaður hefur látið athugun sinni á málinu lokið en fylgist áfram með framvindunni.

Ábending barst um að sjúklingar sem hafa verið nauðungarvistaðir í geðþjónustu Landspítala á deild 33A, í allt að 21 sólarhring, hafa ekki átt kost á útiveru fyrr en að þeim tíma liðnum.

Umboðsmaður óskaði í kjölfarið eftir upplýsingum frá spítalanum um hvort og þá með hvaða hætti tryggt væri að sjúklingum byðist útivist. Einnig var farið fram á að fá upplýsingar um verklagsreglur þar að lútandi ef þær lægju fyrir, að því fram kemur á vef umboðsmanns Alþingis.

Fá að fara í fylgd starfsmanns

Í svari Landspítala kom fram að sjúklingar hefðu aðgang að lokuðum garði innan geðþjónustunnar á daginn og kvöldin og fengju að fara þangað í fylgd starfsmanns. Þá voru engar verklagsreglur fyrir hendi um útiveruna. 

Þá var einnig greint frá því að ákveðið hefði verið að skoða verklagið frekar og að sú vinna væri hafin. Hefur umboðsmaður því lokið athugun sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert