Engin verðbólga á fíkniefnamarkaðnum

Valgerður Á. Rúnarsdóttir, forstjóri sjúkrahússins Vogs.
Valgerður Á. Rúnarsdóttir, forstjóri sjúkrahússins Vogs. mbl.is/Árni Sæberg

Verðlag á ólöglegum fíkniefnum hefur haldist nokkuð stöðugt. Verðbólgan smitast ekki yfir í fíkniefnamarkaðinn, enda fer hann ekki í gegnum neinar hefðbundnar boðleiðir þar sem hækkun launa, mannekla og hrávöruskortur hafa áhrif. 

Þannig ræðst verðið alfarið af framboði og eftirspurn, að sögn Valgerðar Rúnarsdóttur, forstjóra Vogs, meðferðarúrræðis SÁÁ. 

„Það virðist vera mikið framboð og verð hafa haldist nokkuð stöðug.“

Bersýnileg fylgni er milli neyslu kókaíns og efnahags, en það má sjá á því hvernig kókaínneysla var í hámarki árið 2007 og dróst svo verulega saman árið 2008, bendir Valgerður á.

Þá jókst hún á ný 2018 og 2019 en dróst saman með heimsfaraldrinum. Áfengisneysla varð aftur á móti meiri sem og notkun sterkra verkjalyfja eins og ópíóða. 

Kókaín neysla helst í hendur við efnahag, en neyslan eykst …
Kókaín neysla helst í hendur við efnahag, en neyslan eykst með hagsæld og dregst saman þegar í harðbakkann slær. AFP

Eitt gramm af MDMA kostar 7.900 krónur

Vogur tekur saman upplýsingar yfir verð á þeim efnum sem eru í umferð í hverjum tíma. Samkvæmt þeirri skrá eru verð á helstu fíkniefnunum eftirfarandi.

Þann 30. apríl kostaði hass 3.000 krónur, en gras 2.400 krónur. 

Spice kostaði 3.700 krónur, amfetamín 3.800 krónur og metamfetamín 14 þúsund, sem er einnig verðið á kristal (e. Crystal Meth).

MDMA kostar 7.900 krónur hvert gramm og kókaín grammið kostar 17 þúsund krónur. Heróín kostar 30 þúsund krónur og Ketamín 12 þúsund. Stykkið af E-töflu kostar 2.600 krónur.

Þá eru í umferð ýmis lyfseðilsskyld lyf, svo sem rítalín, en 20 millígrömm kosta 1.000 krónur. Tafla af Concerta er seld á 1.000 krónur, ef um er að ræða 27 millígrömm, en 54 milligrömm kosta 2.500 krónur. 

Parkódín forte fæst á 500 krónur. Contalgin, 200 milligrömm, kostar 7.000 krónur og OxyContin, 80 milligrömm, selst á 5.000 krónur.

Sjá hvort verð hækki með haldlagningunni

Lög­regl­an greindi frá því á blaðamannafundi í gær að hún hefði lagt hald á fíkni­efni og efni til fram­leiðslu á fíkni­efn­um að and­virði 1,7 millj­arða króna í tengsl­um um­fangs­mikla rann­sókn á skipu­lagðri brot­a­starf­semi hér á landi sem staðið hef­ur yfir síðustu mánuði.

Valgerður segir þetta verulegt magn og áhugavert verði að fylgjast með hvort það komi til með að hafa áhrif á verð og á samfélag fíkniefnaneytenda.

Meðal þess sem lagt var hald á í fyrr­nefndri rann­sókn, voru á 200 kanna­bis­plönt­ur, 200 kílógrömm af maríjú­ana og 20 kílógrömm af hassi.

Sjö kíló af MDMA kristal, sem hægt er að fram­leiða úr 50 þúsund e-töfl­ur, sjö þúsund E-töfl­ur, rúm­lega 20 lítra af MDMA basa, sem hægt er að fram­leiða 200 þúsund e-töfl­ur úr.

Þá var lagt hald á 40 lítra af am­feta­mín­basa, en miðað við styrk­leika má fram­leiða 170 kílógrömm af am­feta­míni úr því, og 20 kílógrömm af krist­al­metam­feta­míni.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert