Guðrún Ása aðstoðar Willum

Guðrún Ása Björnsdóttir læknir.
Guðrún Ása Björnsdóttir læknir. Ljósmynd/Heilbrigðisráðuneytið

Guðrún Ása Björnsdóttir læknir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Willum Þórs Þórsonar heilbrigðisráðherra. 

Guðrún Ása er með BS-gráðu í lífefnafræði frá Háskóla Íslands, MB ChB-gráðu í læknisfræði frá Warwick-háskóla í Bretlandi og leggur stund á doktorsnám í læknisfræði við Háskóla Íslands.

Við doktorsnám sitt er Guðrún Ása að sérhæfa sig í öldrunarlækningum og hefur hún víðtæka starfsreynslu innan heilbrigðiskerfisins. Hún hefur samhliða störfum sínum sem læknir sinnt rannsóknum og kennslu við Háskóla Íslands.

Ötul í nefndarstörfum

Guðrún Ása hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Læknafélag Íslands. Hún var formaður Félags almennra lækna, sat í stjórn Læknafélags Íslands og útgáfustjórn Læknablaðsins árin 2018-2020 og í læknaráði Landspítalans árin 2017-2020.

Hún hefur setið í ýmsum nefndum og starfshópum á vegum heilbrigðisráðuneytisins, Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Læknafélags Íslands. Meðal annars í  samninganefnd Læknafélags Íslands árin 2019 til 2021 og er nýlega tekin við sem formaður samninganefndarinnar en lætur af þeim störfum nú.

Guðrún Ása er gift Halldóri Benjamín Þorbergssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, og saman eiga þau fjögur börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert