Hvalfjarðagöngum lokað vegna umferðaóhapps

Hvalfjarðargöngin eru lokuð vegna umferðaróhapps.
Hvalfjarðargöngin eru lokuð vegna umferðaróhapps. Ljósmynd/Aðsend

Umferðaróhapp varð í Hvalfjarðargöngunum fyrir skömmu og hefur þeim verið lokað. Löng bílaröð hefur myndast við op ganganna.

Í tísti frá Vegagerðinni segir að lokunin geti varað í um eina klukkustund.

Uppfært kl. 18:08: Sjónarvottar segja alla vega fjóra laskaða bíla hafa verið dregna upp úr göngunum. 

Uppfært kl. 18:14: Göngin hafa veirð opnuð á ný: 

Ljósmynd/Aðsend
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert