Lögreglan óskar eftir að ná tali af manni

Lögreglan óskar eftir að ná tali af manninum.
Lögreglan óskar eftir að ná tali af manninum. Samsett mynd

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gunnar.runar@lrh.is

Þótt myndirnar séu dálítið óskýrar, má ætla að þær geti gefið góðar vísbendingar um hver maðurinn er.

Önnur myndin af manninum.
Önnur myndin af manninum. Ljósmynd/Lögreglan
Hin myndin af manninum sem lögreglan vill ná tali af.
Hin myndin af manninum sem lögreglan vill ná tali af. Ljósmynd/Lögreglan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert