Ók bílaleigubíl í sjóinn

Mynd úr safni.,
Mynd úr safni., Ljósmynd/Síldarvinnslan/Hákon Ernuson

Erlend kona ók fram af grjótgarði í Neskaupstað með þeim afleiðingum að bíllinn hafnaði í sjónum.

Konan komst sjálf í land en óð aftur út í bílinn á meðan hann var að sökkva til þess að sækja dót sem í honum var að sögn sjónarvotta sem Ríkisútvarpið náði tali af.

Lögreglan kom stuttu síðar á vettvang og var konan flutt með sjúkrabíl til aðhlynningar. Að sögn lögreglu er í lagi með konuna. 

Atvikið átti sér stað við bensínstöð Orkunnar í bænum þar sem hún ætlaði að skilja bílaleigubílinn eftir.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert