Lilja hlynnt hvalveiðum eins og staðan er í dag

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra, segir þurfa að …
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra, segir þurfa að fara í hagsmunamat á hvalveiðum á Íslandi, muni þær ógna hagsmunum ferðaþjónustunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra segist hlynnt þeirri stefnu í hvalveiðum sem farið er eftir eins og staðan er í dag.

„Hins vegar ef hvalveiðar fara að ógna hagsmunum ferðaþjónustunnar, sem er sú grein sem skapar mestar gjaldeyristekjur, þá þurfum við að setjast niður og íhuga það og fara í hagsmunamat á því,“ segir Lilja í samtali við mbl.is.

„Þær hvalveiðar sem við stundum eru byggðar á vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunnar. Það er verið að veiða úr stofnum sem eru sjálfbærir.“

Aukning ferðamanna þrátt fyrir minni kaupmátt

Lilja segir að út frá hagfræðinni ætti verðbólga á heimsvísu og minni kaupmáttur erlendis þýða að það kæmu færri ferðamenn til Íslands sem skili minni gjaldeyristekjum í ríkissjóð.

„Það sem við höfum hins vegar verið að sjá á síðustu 2-3 mánuðum að þrátt fyrir aukna verðbólgu á heimsvísu og hjá okkar helstu viðskiptalöndum eins og Bandaríkjunum og Bretlandi þá hefur átt sér stað aukning í fjölda ferðamanna sem koma til Íslands,“ segir Lilja. 

„Við höfum verið að sjá fleiri ferðamenn en við gerðum ráð fyrir sem er ekki alveg í takt við þessa kenningu. Ég tel það vera of snemmt að segja til um það hvaða áhrif þetta hefur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert