Reiðubúin að fullgilda NATO-samninga um aðild

Katrín segir Finnland og Svíþjóð öfluga málsvara lýðræðis, mannréttinda og …
Katrín segir Finnland og Svíþjóð öfluga málsvara lýðræðis, mannréttinda og félagslegra gilda. AFP

Forsætisráðherrar Danmerkur, Íslands og Noregs segja í sameiginlegri tilkynningu að allt sé nú til reiðu til að löndin þrjú fullgildi samninga um aðild Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu.

Tilkynningin er gefin út í kjölfar þess að aðildarsamningar Finnlands og Svíþjóðar voru undirritaðir fyrr í dag.

„Ég styð aðild Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu. Finnland og Svíþjóð eru öflugir málsvarar lýðræðis, mannréttinda og félagslegra gilda sem eru mikilvæg sjónarmið innan Atlantshafsbandalagsins,“ er haft eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. 

Forsætisráðherrar Danmerkur, Íslands og Noregs gáfu einnig út sameiginlega yfirlýsingu þann 16. maí, þar sem þeir ítrekuðu stuðning við ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar að sækja um aðild að bandalaginu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert