Fólk leiki sér ekki að því að standa í svona stríði

Farþegaskipið Amelia Rose, í eigu Sea Trips.
Farþegaskipið Amelia Rose, í eigu Sea Trips. mbl.is

Eigendur ferðaþjónustufyrirtækisins Sea Trips ætla að áfrýja dómi héraðsdóms Reykjavíkur í máli gegn Samgöngustofu sem féll 12. júlí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Varðar málið skráningu á aldri á skipinu Amelíu Rose.

Forsvarsmenn Sea Trips eru sannfærðir um að Landsréttur muni snúa við dómi héraðsdóms Reykjavíkur.

„Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur olli okkur vonbrigðum og kom okkur í raun verulega á óvart. Við teljum að dómurinn sé rangur og að sönnunarmat það sem hann byggir á sé sömuleiðis rangt. Málið er ekki eins flókið og Samgöngustofa vill meina,“ er haft eftir Svani Sveinssyni, framkvæmdastjóra og eins eiganda Sea Trips í tilkynningunni.

„Það leikur sér enginn að því að standa í svona stríði við opinberar stofnanir, en við sjáum engan annan kost í stöðunni en að halda málarekstrinum áfram til að vernda hagsmuni okkar og fyrirtækisins,“ er haft eftir Svani.

Þurfi að fara í fjárútlát til að standast kröfur

Dómsmálið í héraði snerist um það hvort skipið Amelía Rose teldist vera nýtt eða ekki. Teljist það nýtt þarf fyrirtækið að fara í fjárfrekar úrbætur til að það standist kröfur nýrra skipa, meðal annars hvað öryggi varðar.

„Samkvæmt g-lið 2. gr. reglugerðarinnar telst nýtt skip vera skip þar sem kjölurinn hefur verið lagður eða er á svipuðu smíðastigi 1. janúar 2001 eða síðar. Engin gögn hafa verið lögð fram af hálfu stefnanda sem staðfesta að kjölur skipsins Amelíu Rose hafi verið lagður fyrir 1. janúar 2001,“segir í niðurstöðu dómsins.

„Stefnandi heldur því fram að ákvörðun stefnda um að skrá skipið sem nýtt en ekki gamalt geri útgerð þess í raun ómögulega, en hefur því til stuðnings ekki fært fram önnur rök en þau að stefnandi þurfi að leggja í fjárfrekar úrbætur til að skipið svari öllum kröfum sem gerðar séu til nýrra skipa verði skráningu skipsins ekki hrundið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert