Endursmitum hérlendis hefur fjölgað verulega

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Endursmitum af völdum Covid-19 hefur fjölgað verulega á síðustu tveimur mánuðum og hafa þau á undanförnum vikum mælst um 20% af daglegum fjölda smita. 

Fjölgunin tengist aukningu á BA.5 afbrigði kórónuveirunnar en þetta afbrigði veldur nú um 80% allra smita hér á landi. Erlendar rannsóknir hafa jafnframt sýnt að BA.5 afbrigðið sleppur meira en önnur afbrigði undan ónæmi af völdum fyrri smita,“ segir í tilkynningu frá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni á vef Embættis landlæknis. 

Reikna má með því að hlutfallið sé hærra

Þar segir að 5.116 hafi greinst tvisvar hérlendis og 19 þrisvar, samkvæmt opinberum tölum. Endursmitin gætu þó verið mun fleiri. 

Endursmit eru því í heild 2.6% af öllum smitum en reikna má með að hlutfallið sé hærra þvi ekki fara allir sem greinast með endursmit t.d. á heimaprófum í opinber próf,“ segir í tilkynningunni.

„Þegar endursmitin eru skoðuð nánar þá kemur í ljós að af þeim 30.487 sem greindust í fyrsta sinn á árunum 2020 og 2021 þá endursýktust 4.026 á árinu 2022 eftir að Ómíkron-bylgjan hófst eða 13,2%. Af þeim 169.069 sem smituðust í fyrsta sinn á árinu 2022 þá hefur 841 endursýkst (0,5%). Rétt er að hafa í huga að alþjóðleg skilgreining á endursmiti er nýtt smit sem greinist 60 dögum eða síðar eftir fyrra smit.“

Óvissuþáttur hversu vel og lengi ónæmi varir

Þá segir Þórólfur að helsti óvissuþátturinn í dag hvað varðar kórónuveirufaraldurinn snúi að því hversu vel og lengi ónæmi varir eftir sýkingu og/eða bólusetningu.

„Í skýrslu Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) frá 18. júlí 2022 kemur fram að þriðji skammtur bólusetningar (fyrsti örvunarskammtur) kemur að talsverðu leyti í veg fyrir smit af völdum Covid-19 en verndin er betri gegn alvarlegum veikindum. Verndin dvínar hins vegar á fyrstu þremur mánuðum eftir bólusetninguna og er misgóð eftir afbrigðum veirunnar en verndin er minni gegn ómícron afbrigðinu en öðrum afbrigðum. Fjórði bólusetningarskammtur bætir hins vegar verndina til muna en ekki er komin nægileg reynsla enn sem komið er til að segja hversu lengi hún varir,“ segir í tilkynningunni. 

Þar kemur jafnframt fram að Þórólfur fylgist með hversu vel og lengi vernd eftir fyrstu sýkingu af völdum Covid-19 varir. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert