Grunur um nýja bakteríusýkingu í hundum

Grunur um Brucella canis hefur ekki komið upp áður hér …
Grunur um Brucella canis hefur ekki komið upp áður hér á landi. mbl.is/Sigurgeir

Grunur er um að Brucella canis bakteríusýking hafi komið upp í hundi hér á landi í fyrsta sinn. 

Kemur fram í tilkynningu á vef Matvælastofnunar (MAST) Brucella canis sé súna sem er sjúkdómur sem getur smitast á milli dýra og manna en þó er tekið fram að smit í fólk af völdum Brucella canis séu sjaldgæf. Búið er að hafa samband við þá sem eru taldir líklegastir til að verða útsettir fyrir smit.

Þá segir að helstu einkenni sjúkdómsins hjá hundum séu fósturlát seint á meðgöngutíma, andvana eða veikburða hvolpar sem oft drepast fljótlega og bólgur í eistnalyppum hjá rökkum. Helsta smitleiðin milli dýra er pörun en náið samneyti milli hunda getur einnig valdið smiti.

Fáum tilfellum lýst í fólki

Fáum tilfellum af Brunella canis sýkingu í fólki hefur verið lýst en einkenni geta komið fram eftir nokkra daga eða jafnvel mánuði og geta verið hiti, hrollur, vanlíðan, lystarleiði, bein- eða vöðvaverkir og eitlastækkanir.

Helsta áhættan á smiti í fólki er frá vessum og vefjum við fæðingarhjálp hjá sýktum tíma og eru því dýralæknar og hundaræktendur líklegast til að verða útsettir en sjúkdómurinn smitast almennt ekki á milli manna.

„Gripið hefur verið til aðgerða svo sem tilmæla til viðeigandi aðila um heimasóttkví dýra og pörunarbann þar sem við á. Einnig er unnið að söfnun faraldsfræðilegra upplýsinga og sýnatökum. Aðgerðir miðast við að koma í veg fyrir dreifingu sjúkdómsins á meðan beðið er eftir staðfestingu greiningar,“ segir í tilkynningunni en tvær vikur geta liðið áður en endanlega niðurstaða liggur fyrir.

MAST segir það brýnt að hundaræktendur gæti fyllstu smitvarna við fæðingarhjálp hjá hundum sínum og hafi samband við dýralækni verði þeir varir við óeðlileg einkenni tengd meðgöngu eða goti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert