Tekur sér leyfi en segir ásakanirnar ósannar

Sturla B. Johnsen heimilislæknir.
Sturla B. Johnsen heimilislæknir.

Sturla B. Johnsen heimilislæknir segist í yfirlýsingu aldrei hafa brotið kynferðislega gegn öðrum einstaklingi en að hann hafi verið borinn þungum sökum í umræðuþræði á Facebook-hóp. Meðal annars var hann sakaður um nauðgun.

„19. júlí síðastliðinn birtist nafnlaus færsla inni á Facebook hópnum Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu þar sem bornar eru þungar sakir, meðal annars nauðgun, á heimilislækni og honum lýst þannig að þeir sem vilja vita eiga auðvelt með að komast að því um hvern ræðir. Síðar í umræðuþræðinum er ég svo nafngreindur sem sá læknir.

Ég vil byrja á því að taka hér fram að ég hef aldrei brotið kynferðislega gegn öðrum einstaklingi. Aldrei. Né hef ég nýtt starf mitt sem læknir til að brjóta á eða misnotaða aðstöðu mína á nokkurn hátt gegn sjúklingum mínum eða öðrum einstaklingum. Aldrei.“

Mætti vera nærgætnari í orðavali

Sturla segist þó ekki geta skorast undan þeirri staðreynd að hann sé mannlegur og að hann geti játað sig sekan um að hann hefði mátt vera nærgætnari í orðavali við konur. Það sé ekki karlmanni sæmandi að ávarpa allar konur prinsessur eða kalla þær elskulegar.

„Ég tek það til mín og mun vanda betur orðaval mitt í framtíðinni og vil biðja þær konur sem ég hef sært blygðunarkenndina hjá með orðum mínum innilega afsökunar,“ skrifar Sturla.

„Ég, bæði sem læknir og sem manneskja, hef ekkert að fela. Það breytir því þó ekki að því fylgir einnig mikil ábyrgð að reka heilsugæslu og snýr sú ábyrgð bæði að samstarfsfólki mínu og þeim sjúklingum sem heilsugæsluna sækja.“

„Aldrei“

Þá segist hann ætla að taka sér leyfi frá störfum af virðingu við fyrirtækið sem hann segist hafa lagt hart að sér að byggja.

„Það erfiða skref tek ég vitandi að ég hef aldrei gerst sekur um þær þungu sakir sem á mig eru bornar. Aldrei.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert