Jarðskjálfti upp á 4,2 í Mýrdalsjökli

Sunnanverður Mýrdalsjökull.
Sunnanverður Mýrdalsjökull. mbl.is/RAX

Nokkuð kröftugur jarðskjálfti varð í sunnanverðum Mýrdalsjökli klukkan tvær mínútur í ellefu í kvöld. 

Fyrsta mat á skjálftanum er að hann hafi verið 4,2 að stærð, að sögn náttúruvársérfræðings á vakt hjá Veðurstofu Íslands. Nokkrir minni skjálftar hafa fylgt í kjölfarið.

Gefin verður út lokastærð þegar skjálftinn hefur verið yfirfarinn af náttúruvársérfræðingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert