„Yfirgefa brekkuna á miðnætti“

Öfgar biðja fólk að yfirgefa brekkuna þegar Gillz stígur á …
Öfgar biðja fólk að yfirgefa brekkuna þegar Gillz stígur á svið. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Samtökin Öfgar hvetja fólk til þess að „standa með þolendum og yfirgefa brekkuna á miðnætti“ annað kvöld. Það er á sama tíma og tónlistarmaðurinn og skemmtikrafturinn Egill „Gillz“ Einarsson stígur á svið.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Öfgum, sem send var út í kvöld. Nú sé ár síðan þolendur og aktívistar hafi fengið nóg af því að meintum gerendum sé hampað á stærstu útihátíð landsins.

Segjast skilja að Bleiki fíllinn hafi hætt

„Eftir mörg ár af baráttu, margar byltingar og berskjöldun þolenda þá var eins og núna væri kannski tími þolenda kominn? Núna ári síðar er maður uppi á sviði sem hefur í tvígang verið kærður fyrir nauðgun,“ segir í yfirlýsingunni.

Segir þar að ákvörðun þjóðhátíðarnefndar og þögn tónlistarfólks sanni að þrátt fyrir fjölda byltinga skipti þolendur hana engu máli og skilji samtökin því vel ákvörðun bleika fílsins að leggja árar í bát.

„Þið tókuð einhliða ákvörðun þegar að þið ákváðuð að það væri mikilvægara að hafa meintan nauðgara beran að ofan uppi á sviði að berja á trommur. Að lokum viljum við hvetja ykkur sem standið með þolendum að yfirgefa brekkuna þegar hann stígur á svið. Hlutleysi er ekki til. Hlutleysi þýðir afstaða með meintum geranda,“ segir í lokin.

Yfirlýsingin í heild:

Það er bara eitt ár síðan þolendur og aktívistar fengu nóg af því að meintum gerendum sé hampað á stærstu útihátíð landsins.

Í fyrsta skiptið var hlustað, eða hvað?

Eftir mörg ár af baráttu, margar byltingar og berskjöldun þolenda þá var eins og núna væri kannski tími þolenda kominn? Núna ári síðar er maður uppi á sviði sem hefur í tvígang verið kærður fyrir nauðgun.

Þema druslugöngunnar í ár var valdaójafnvægi. Metoo byltingin síðastliðnu 12 mánuði hefur verið afhjúpun á valdamönnum sem í krafti valda og samfélagsstöðu beita ofbeldi, framlengja ofbeldinu með yfirlýsingum í fjölmiðlum og í skjóli réttakerfis sem verndar þá. Þeir komast upp með það án þess að þurfa nokkurntímann að axla ábyrgð, á meðan samfélagið sýpur hveljur yfir breyttu landslagi sem kallað er slaufunarmenning.

Þessi meinti nauðgari sem um ræðir gerði akkurat það. Opinberlega veittist að æru þolanda sem kærði hann fyrir nauðgun og kærði hana svo fyrir rangar sakagiftir.

Seinna málið fór ekki jafn hátt í umræðunni því við sem samfélag brugðumst þolendum með því að kokgleypa við aðförinni sem stóð yfir vikum saman. Hann bjó til uppskrift fyrir alla hina og mörgum árum síðar eru þessar aðferðir meintra gerenda enn við lýði.

Með þessari ákvörðun hrifsaði þjóðhátíðarnefnd því alla von frá þolendum um að geta mætt á þolendavæna þjóðhátíð.

Allt í nafni forréttinda manns sem hefur aldrei nokkurntímann axlað ábyrgð.

Öfgar ásamt 130 öðrum konum gerðu ákall á tónlistarfólk með yfirlýsingu síðasta árs.

Að tónlistarfólk tæki afstöðu og nýttu sitt vald til þess að hafa áhrif. Ekkert ykkar hefur sagt eitt einasta orð. Ekkert ykkar hefur notað platformið til þess að sýna að þið standið með þolendum og að þið fordæmið að menn innan ykkar geira beiti ofbeldi.

Slaufunarmenning gegn meintum gerendum er ekki til. Ákvörðun þjóðhátíðarnefndar og þögn tónlistarfólks sannar að þràtt fyrir allar byltingarnar sem þolendur og aktívistar hafa staðið fyrir í aldanna rás, að þolendur skipta ykkur engu máli. Að slaufunarmenningin beinist að þolendum. Við skiljum því vel ákvörðun Bleika fílsins að leggja árar í bát þetta árið eftir 10 ár af óeigingjarnri vinnu í erfiðu landslagi. Skilaboðin gætu ekki verið skýrari. Þið tókuð einhliða ákvörðun þegar að þið ákváðuð að það væri mikilvægara að hafa meintan nauðgara beran að ofan uppi á sviði að berja á trommur.

Að lokum viljum við hvetja ykkur sem standið með þolendum að yfirgefa brekkuna þegar hann stígur á svið. Hlutleysi er ekki til. Hlutleysi þýðir afstaða með meintum geranda.

Stjórn Öfga.
Stjórn Öfga. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert