Húsnæði Skógarbaðanna rýmt vegna reyks

Skógarböðin opnuðu í maí.
Skógarböðin opnuðu í maí. Aðsend/Axel Þórhallsson

Skammhlaup varð í rafmagnstöflu sem olli því að rýma þurfti húsnæði Skógarbaðanna á Akureyri rétt eftir hádegi. 

Þetta staðfestir lögreglan á Akureyri. Tilkynning um reyk barst lögreglu klukkan 12:35 í dag en starfsfólk brást vel við með því að koma öllum gestum út úr húsnæðinu hratt og örugglega. 

Slökkviliðið bar svo að og lauk við að reykræsta húsið á tæpum 20 mínútum. 

Gestum sem komnir voru ofan í böðin sjálf, var engin hætta búin og þurftu þeir því ekki að yfirgefa svæðið meðan á reykræstingu stóð. 

Reykurinn var mestur í starfsmannarými og eldhúsi og honum fylgdi talsverð lykt. Ekki varð tjón á öðru en rafmagnstöflunni sjálfri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert