4 til 5 bíla árekstur við Esjurætur

Gríðarleg umferðarteppa hefur myndast vegna þessa.
Gríðarleg umferðarteppa hefur myndast vegna þessa. mbl.is/ Sigurður Bogi

Fjögurra til fimm bíla árekstur varð við Esjurætur í Kollafirði laust eftir klukkan eitt. Sextán einstaklingar lentu í árekstrinum og voru þrír fluttir með sjúkrabíl af vettvangi með minniháttar áverka, að sögn Bjarna Ingimarssonar slökkviliðsmanns.

Slysið varð til þess að umferð stíflaðist í báðar áttir. Bílarnir hafa ekki enn verið fjarlægðir af götunni svo lögregla er á staðnum að stýra umferð.

Mikil bílaröð hefur myndast beggja vegna og fyrirséð er að það muni taka nokkurn tíma að greiða úr umferðinni. 

Slökkviliðið sendi á staðinn tvo dælubíla og þrjá sjúkrabíla. Allir sjúkrabílarnir voru nýttir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert