Drífa Snædal segir af sér

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), hefur sagt af sér. Hún segir samskipti við ýmsa kjörna fulltrúa innan sambandsins og blokkamyndun innan félagsins gera sér ókleift að starfa áfram sem forseti ASÍ. Átökin innan ASÍ hafi verið óbærileg.

Kristján Þórður Snæbjarnarson er fyrsti varaforseti ASÍ og tekur því væntanlega við embættinu.

„Þing ASÍ er í byrjun október og ég þurfti að gera það upp við mig hvort ég gæfi áfram kost á mér. Þegar ég hugsaði málið varð niðurstaða mín sú að ég treysti mér ekki til að starfa áfram yrði ég til þess kjörin og af því leiddi að það væri skynsamlegt í ljósi kjaraviðræðna og undirbúnings þingsins að hætta sem fyrst. Ég veit að ég nýt mikils stuðnings félaga og í samfélaginu og fyrir það er ég þakklát. Það eru hins vegar samskipti við ýmsa kjörna fulltrúa innan sambandsins og sú blokkamyndun sem þar hefur átt sér stað sem gera mér það ókleift að starfa áfram sem forseti ASÍ,“ segir Drífa í tilkynningu.

Á ekki samleið með sumum í baráttunni

Þar segir hún að hún hafi ekki vílað það fyrir sér að taka slaginn fyrir launafólk gagnvart stjórnvöldum eða atvinnurekendum.

„Enda er það hluti af því að vera í verkalýðsbaráttu. Átök innan ASÍ hafa hins vegar verið óbærileg og dregið úr vinnugleði og baráttuanda. Þegar við bætast ákvarðanir og áherslur einstakra stéttarfélaga sem fara þvert gegn minni sannfæringu er ljóst að mér er ekki til setunnar boðið. Ég treysti mér ekki til að vinna með fólki sem ég á ekki samleið með í baráttunni. Og ég hef sem forseti verið í þeirri stöðu sem ég ætlaði mér aldrei; að telja mig ekki eiga annars kost en að gagnrýna stjórnarákvarðanir og formenn stærstu stéttarfélaga innan ASÍ. Þegar stjórn Eflingar stóð fyrir hópuppsögn á skrifstofu félagsins sá ég mig knúna til að mótmæla þeim, enda hefur verkalýðshreyfingin barist gegn hópuppsögnum í tímans rás. Ég þurfti einnig að bregðast við linnulausri, en óljósri gagnrýni formanns VR á mín störf. Dæmin eru fleiri og það sem fólk leyfir sér í samskiptum hvert við annað innan hreyfingarinnar er henni ekki til framdráttar og félögum ekki til hagsbóta,“ segir í tilkynningunni frá Drífu.  

Kristján Þórður Snæbjarnarson er fyrsti varaforseti ASÍ.
Kristján Þórður Snæbjarnarson er fyrsti varaforseti ASÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Hreinlegast að segja þetta gott“

„Verkalýðshreyfingin er ein merkilegasta mannréttindahreyfing heims og hjarta mitt hefur slegið þar og mun gera það áfram. Ég get hins vegar ekki sinnt störfum mínum lengur sem forseti ASÍ. Þá er hreinlegast að segja þetta gott. Og til að taka af allan vafa er þetta ekki hluti af einhverri stærri fléttu, ég einfaldlega hverf af þessum vettvangi án þess að hyggja á endurkomu.“

Drífa þakkar í lokin stuðningsfólki sínu „af öllu hjarta“ og biður um skilning á ákvörðun sinni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert