Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hljóp í morgun tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu.
Hún segir í færslu á Facebook hafa lagt af stað með syni sínum Illuga og G. Pétri Matthíassyni meðhlaupara sínum en drengurinn var ekki lengi að stinga þau af og kom rúmum tíu mínútum á undan Katrínu í mark.
Katrín og G. Pétur hlupu fyrir Alzheimersamtökin.