Eldur kviknaði í St. Jósefsspítala

Þrír dælubílar voru sendir á staðinn. Mynd úr safni.
Þrír dælubílar voru sendir á staðinn. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eldur kviknaði í þaki viðbyggingar St. Jósefsspítala um klukkan hálf ellefu í kvöld. Voru þrír dælubílar sendir á staðinn auk tveggja sjúkrabíla. 

Þetta staðfestir Hafsteinn Halldórsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.

Náðu fljótt tökum á eldinum

Hann segir að slökkviliðinu hafi tekist fremur fljótlega að ná tökum á eldinum og hafi verið að störfum í um klukkustund. Enginn hlaut skaða af.

„Það er búið að slökkva allan eld og slökkvistarfi er lokið.“

Ekkert er vitað um upptök eldsins, enn sem komið er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert