Kaupsamningar ekki færri síðan 2015

Austurborg Reykjavíkur.
Austurborg Reykjavíkur. mbl.is/Sigurður Bogi

Kaupsamningar um íbúðahúsnæði hafa ekki verið færri hér á landi síðan í apríl 2015 ef miðað er við sex mánaða hlaupandi meðaltal. Verð á íbúðum í fjölbýli hækkaði aðeins um 0,5% í júní á höfuðborgarsvæðinu en þar á undan var mánaðarleg hækkun fimm mánuði í röð á bilinu 2,4-3,2%.

Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu hagdeildar HMS fyrir ágúst.

Í júní seldust 53,3% íbúða á landinu öllu yfir ásettu verði samanborið við 50,3% íbúða í maí en hæst fór hlutfallið í 54,3% í apríl.

Í júní styttist meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu úr 45,9 dögum í 41,9. Á landsbyggðinni lengdist hann úr 66,0 í 57,0 en í báðum tilfellum var hann þó ívið lengri en í apríl.

Graf/HMS

Árshækkun leiguverðs mælist 9,6% á höfuðborgarsvæðinu í júní miðað við vísitölu leiguverðs en hafði mælst 9,6% í maí. Meðalfjárhæð greiddrar leigu var 207.200 kr. í júní miðað við þinglýsta leigusamninga en í júní fyrir ári var hún 197.500 kr.

Fyrstu merki kólnunar 

Fram kemur í skýrslunni að þótt helstu mælikvarðar um fasteignamarkaðinn séu ekki ótvíræðir eru líklega komin fram fyrstu merki um kólnun á fasteignamarkaði.

„Eitt stærsta merkið um viðsnúning fæst þegar rýnt er í framboð íbúða. Á höfuðborgarsvæðinu fór framboð íbúða minnkandi út júlímánuð þvert á væntingar en í ágúst hefur það hins vegar aukist hratt  eða úr 700 í 905 á aðeins 20 dögum. Athygli vekur þó að yfir júlímánuð hafði framboðið dregist saman úr ríflega 800 í 700. Frá því að botninum var náð í byrjun febrúar hefur framboðið á höfuðborgarsvæðinu þó rúmlega tvöfaldast. Í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins hefur  framboðið vaxið nánast stöðugt frá því í apríl og hefur rúmlega tvöfaldast síðan þá,“ segir í skýrslunni.

Talsverð fækkun hefur orðið á íbúðum sem seljast 5% eða meira yfir ásettu verði. Þannig seldust 20,8% íbúða í fjölbýli á  höfuðborgarsvæðinu svo hátt yfir ásettu verði í júní samanborið við 34,6% í apríl.

Á meðal sérbýla var hlutfallið 17,4% samanborið við 25,3% í maí. Það gefur til kynna að íbúðir seljist síður mikið yfir ásettu verði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert