Hugur Veitna hjá íbúum

Frá vettvangi í gærkvöldi.
Frá vettvangi í gærkvöldi. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórnstöð Veitna varð fyrst vör við þrýstingslækkun í kerfi sínu klukkan 21:43 í gær. Hófst þá vinna við að staðsetja lekann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum.

Eins og mbl.is hefur greint frá fór kalda­vatns­lögn Veitna í sund­ur með þeim af­leiðing­um að vatns­elg­ur myndaðist í Hvassa­leit­inu í Reykja­vík í gærkvöldi. 

Í tilkynningunni segir að mannskapur hafi verið kallaður út til að bregðast við. Fyrsta verk hans hafi verið að loka fyrir vatnið en fara hafi þurft í þrjú lokahús til að skrúfa fyrir flæðið. Þá hafði töluvert af vatni þegar flætt með tilheyrandi tjóni.

„Ljóst er að íbúar á svæðinu hafa orðið fyrir tjóni vegna þessa og er hugur Veitna hjá því fólki. Við hvetjum fólk sem orðið hefur fyrir tjóni að hafa samband við sitt tryggingarfélag en orsök lekans liggja ekki fyrir að svo stöddu,“ segir í tilkynningunni.

Tekin úr rekstri

Fram kemur að lögnin hafi nú verið tekin úr rekstri og ítarlegri greiningarvinna og viðgerðir muni hefjast strax á mánudag. Þar sem þetta er ein tveggja lagna sem veitir vatn til vestari hluta höfuðborgarinnar mun fólk ekki finna fyrir því að lögnin sé úr rekstri.

Þá segir að ljóst sé að engar framkvæmdir eða viðgerðir hafi staðið yfir í grennd við lekastaðinn og því muni Veitur leggja mikla áherslu á að komast að orsökum lekans.

„Veitur munu fara í gagngera greiningu á lögninni og ekki setja hana í rekstur á ný fyrr en búið er komast að orsökum og tryggja öryggi hennar,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert