Inga Þóra Pálsdóttir
Foreldrar barna sem bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík eru mættir í Ráðhús Reykjavíkur, ásamt börnum sínum, til að þrýsta áfram á borgaryfirvöld um að leysa leikskólavandann, en fyrsti fundur borgarstjórnar eftir sumarfrí hófst klukkan tvö í dag.
Foreldrarnir og biðlistabörnin sitja nú á pöllum borgarstjórnarsalsins, en leikskólamálin eru annað mál á dagskrá fundarins.
Sum barnanna hafa ekki falið óánægju sína yfir því að vera ekki kominn með leikskólapláss og hafa þau látið í sér heyra.
Síðan í byrjun ágúst hafa foreldrar mætt með börn sín á fimmtudögum í Ráðhúsið til að mótmæla aðgerðarleysi borgaryfirvalda, en fundir borgarráðs fara fram á fimmtudögum.
Fyrir að verða þremur vikum kynnti borgarráð sex tillögur að lausnum á vandanum. Byrjað er að framkvæma tillögurnar.