Síminn og HR skrifa undir samstarfssamning

Erla Ósk Ásgeirsdóttir frá Símanum, Ardís Marela Unnarsdóttir, Þórdís Matthea …
Erla Ósk Ásgeirsdóttir frá Símanum, Ardís Marela Unnarsdóttir, Þórdís Matthea Eiríksdóttir, Jenný Drífa Kristjánsdóttir og Gísli Hjálmtýsson frá HR. Ljósmynd/Aðsend

Síminn og Háskólinn í Reykjavík hafa undirritað fimm ára samstarfssamning um stuðning Símans við konur með framúrskarandi námsárangur til náms í tæknigreinum í HR. Markmið samstarfsins er að fá ungar konur til að íhuga tæknigreinar sem valkost í námi og fjölga konum sem útskrifast úr tæknigreinum.

Þetta kemur fram í tilkynningu hjá Símanum.

Að þessu sinni eru fimm nýnemar styrktir til náms og eru þær að hefja nám í hátækniverkfræði, hugbúnaðarverkfræði, rafmagnstæknifræði, og tölvunarfræði. Nemendurnir eiga það allar sameiginlegt að hafa lokið framhaldsskóla með framúrskarandi námsárangri. Skólagjöld þeirra fyrir veturinn 2022-2023 verða greidd af Símanum, ásamt því að möguleiki er á áframhaldandi styrk út námið.

„Við hjá Símanum erum stolt af því að styrkja þessar metnaðarfullu konur til náms og góðra verka. Við trúum að þessi vegferð muni styrkja atvinnulífið til framtíðar, auka nýliðun kvenna í upplýsingatækni og skapa mikið virði fyrir íslenskt samfélag. Samhliða viljum við ásamt HR ögra staðalímyndum og stuðla að fjölbreyttari vinnumarkaði,“ segir Erla Ósk Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri hjá Símanum.

Gísli Hjálmtýsson, forseti tæknisviðs Háskólans í Reykjavík, segir að með samstarfinu sé verið að hvetja konur til náms í tæknigreinum með beinum hætti.

„Samfélagið verður að taka höndum saman og breyta staðalímynd tæknistarfa. Tæknigreinar eru einn öflugasti vaxtarbroddurinn í íslensku samfélagi og verkefni af þessu tagi henta HR sérstaklega vel, enda er skólinn með þunga áherslu á frumkvöðla, nýsköpun og sprota í tæknigreinunum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert