Verðlaunamynd sýnd við opnun RIFF

Photo/RIFF

Kvikmyndin Vera verður sýnd við opnun kvikmyndahátíðarinnar RIFF í ár en hátíðin hefst hinn 29. september og mun standa til 9. október. 

Myndin var frumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í september en um Norðurlandafrumsýningu á myndinni að ræða á RIFF. Tveir leikstjórar stýrðu gerð myndarinnar Tizza Covi og Rainer Frimmel.

Myndin kannar myrkar hliðar frændhygli, grimmra fegurðarviðmiða og mótun sjálfsmyndar af því að vera barn frægra foreldra fremur en einstaklingur með eigin drauma og þrár.  Myndin fjallar um Veru, dóttur frægs ítalsk kvikmyndagerðarmanns. Hún býr í skugga föður síns í hástigum samfélagsins. Þrátt fyrir mikinn vilja til að tengjast öðru fólki og eiga í merkingarbærum samskiptum sjá flestir Veru sem möguleika á að komast í álnir og góð tengsl við elítuna. Vera er þreytt á þessu yfirborðskennda lífi og þegar leigubíll, sem hún er farþegi í, keyrir á ungan dreng, myndar hún spennuþrungið samband við drenginn og föður hans. Þeir búa við veruleika, alls ólíkan hennar, fátækt og vatnsskort. Vera þarf fljótlega að spyrja sig sömu spurningar og áður um hvort hún hafi aðeins hagnýtt gildi fyrir aðra?“ segir í tilkynningu frá RIFF. 

RIFF fer nú fram í nítjánda skiptið og fer fram í Háskólabíó.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert