Sjúkrabílar í 243 útköll á tveimur sólarhringum

Sjúkrabílarnir voru á ferðinni um helgina.
Sjúkrabílarnir voru á ferðinni um helgina. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Mikið hefur verið að gera í sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu um helgina. 

Samkvæmt slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu hafa sjúkraflutningarnir verið 243 talsins síðustu tvo sólarhringa. Síðasti sólarhringur var heldur rólegri en sá fyrri en þó 108 sjúkraflutningar. 

Þá voru 44 forgangsflutningar en 43 forgangsflutningar sólarhringinn á undan. 

Dælubílar slökkviliðsins hafa farið í þrettán útköll sem öll flokkast sem minniháttar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert