Styrkjum úthlutað til barna á flótta

Markmiðið styrkjanna var að brúa bilið frá móttöku barna á …
Markmiðið styrkjanna var að brúa bilið frá móttöku barna á flótta og þangað til að skólastarf myndi hefjast í haust. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mennta- og barnamálaráðuneytið úthlutaði í dag styrkjum til sveitarfélaga sem ætlaðir eru til að aðstoða við móttöku barna á flótta.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Sveitarfélögunum stóð til boða að sækja um fjárhagslegan stuðning að hámarki 200.000 krónum fyrir hvert barn á flótta.

Mennta- og barnamálaráðuneytið úthlutaði styrkjunum í tveimur lotum en sú fyrri var í maí. Í heildina nam stuðningurinn rúmlega 40 milljónum króna.

„Stuðningurinn var veittur tímabundið til að styðja við fjölbreytt tómstunda- og menntunarúrræði fyrir börnin og undirbúning skólastarfs í haust,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert