Beint: Ferðaþjónustudagurinn 2022

Ferðaþjónustudagurinn verður haldinn í Hörpu.
Ferðaþjónustudagurinn verður haldinn í Hörpu. Ljósmynd/Aðsend

Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir Ferðaþjónustudeginum 2022 í Norðurljósum í Hörpu í dag kl. 15.00. Hægt verður að fylgjast með útsendingu frá deginum hér að neðan.

Segir í tilkynningu að á fundinum verði fjallað um ferðaþjónustu með tilliti til verðmætasköpunar og stöðunnar í hagkerfinu, áhrif greinarinnar á samfélagið og hvað þarf til að tryggja jákvæða uppbyggingu til framtíðar.

Meðal þátttakenda í deginum eru Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, sem munu rýna í stöðu og samspil ferðaþjónustu við aðra þætti efnahagslífsins í kjölfar heimsfaraldurs og í ljósi áskorana í ríkisfjármálum.

Þá munu Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrar og Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Vök Baths, ræða hvernig má viðhalda og styðja jákvæð áhrif ferðaþjónustu á samfélagið, sér í lagi utan höfuðborgarsvæðisins.

Bjarnheiður Hallsdóttir formaður SAF og Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri munu auk þess draga fram áskoranir sem leysa þarf úr til að ferðaþjónusta geti þróast áfram sem jákvæður burðarás efnahagslífs og samfélags.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert