Bólusetningar færast yfir á heilsugæslustöðvar

Bólusetning við kórónuveirunni.
Bólusetning við kórónuveirunni. AFP/Christof Stache

Bólusetningar fyrir fólk sem hyggur á ferðalög verða hér eftir veittar á heilsugæslustöðvum. Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar mun veita ráðgjöf um nauðsynlegar bólusetningar og útbúa bólusetningaráætlun.

Þessi þjónusta var áður veitt á Göngudeild sóttvarna en hún hefur breytt um nafn og heitir nú Heilbrigðisskoðun innflytjenda. Það er í samræmi við breytt hlutverk deildarinnar sem sér nú eingöngu um að veita innflytjendum heilsufarsskoðun eftir komuna til landsins.

„Afar misjafnt er hvers konar bólusetningar ferðamenn ættu að fá eftir því hvert ferðinni er heitið. Fjallað er um bólusetningar fyrir ferðamenn á vefnum Heilsuveru,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert