Markmið að auka lífræna framleiðslu

Svandís Svavarsdótir matvælaráðherra og Stefán Gíslason frá Environice.
Svandís Svavarsdótir matvælaráðherra og Stefán Gíslason frá Environice. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra undirritaði í dag samning við ráðgjafafyrirtækið Environice um gerð tillagna að aðgerðaáætlun fyrir eflingu lífrænnar framleiðslu.

Tillögunum verður skilað til matvælaráðherra í ársbyrjun 2023, að því er fram kemur í tilkynningu.

Meðal markmiða er að í áætluninni komi fram tillögur sem geta aukið lífræna framleiðslu og taki mið af þeim áskorunum sem framleiðslan glímir við í dag.

Þá segir að eftirspurn eftir vottaðri lífrænni framleiðslu fari vaxandi. Áætlun er unnin í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem áhersla er lögð á öfluga íslenska matvælaframleiðslu. Meðal verkefna sem eru tilgreind í áætluninni er tímasett efling lífrænnar framleiðslu sem er lykilþáttur í að auka sjálfbærni íslensks landbúnaðar.

Í aðgerðaáætlun verða skilgreindir hvatar til aukinnar lífrænnar ræktunar og framleiðendur og neytendur hljóta fræðslu um efnið. Áætlunin verður unnin í samráði við helstu haghafa og verður leitað hentugra fyrirmynda í nágrannalöndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert